PSG 4 - 0 Montpellier
1-0 Kylian Mbappe('34)
2-0 Neymar('60)
3-0 Mauro Icardi('61)
4-0 Kylian Mbappe('63)
1-0 Kylian Mbappe('34)
2-0 Neymar('60)
3-0 Mauro Icardi('61)
4-0 Kylian Mbappe('63)
Paris Saint-Germain var ekki í miklum erfiðleikum með Montpellier í kvöld er liðin mættust í frönsku deildinni.
PSG fékk í raun draumabyrjun í leiknum en eftir 19 mínútur var Jonas Omlin rekinn af velli hjá gestunum sem lentu þá manni færri.
Meistararnir nýttu sér svo sannarlega muninn en voru þó aðeins 1-0 yfir í leikhléi eftir mark Kylian Mbappe.
Á aðeins þremur mínútur í seinni hálfleik skoraði PSG svo þrjú mörk og gekk endanlega frá viðureigninni.
Mbappe hefur fengið gagnrýni síðustu vikur en hann komst tvisvar á blað í kvöld og svaraði vel fyrir sig.
PSG er á toppi deildarinnar með 45 stig, þremur stigum á undan Lille sem á leik til góða.
Athugasemdir