Fotbolti.net
22.05.17 - 22:14
Magnús Már Einarsson

Siggi Lár: Þetta var R1 hringur í vinstra hornið

Auglýsing
Sigurður Egill Lárusson.

Sigurður Egill Lárusson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

<i>„Það er virkilega gott að ná sigri á móti KR,\"</I> sagði Sigurður Egill Lárusson leikmaður Vals eftir 2-1 sigur á KR í Pepsi-deildinni í kvöld.

Siggi skoraði annað mark Vals undir lok fyrri hálfleiks. Kristinn Ingi Halldórsson var rangstæður þegar hann elti stungusendingu en hann hætti við að taka boltann. Sigurður hljóp þá í gegn og skoraði.

<i>„Ég var skíthræddur um að hann ætlaði að taka boltann en ég náði að garga nógu hátt svo hann lét hann vera.\"</i> sagði Siggi sem kláraði færið vel. <i>„Ég var ískaldur. Þetta var R1 hringur í vinstra hornið,\"</I> sagði Siggi léttur og líkti markinu við Playstation mark.
Siggi er kominn með þrjú mörk í fyrstu fjórum umferðunum í Pepsi-deildinni í sumar. „Ég ætla að skora meira en í fyrra. Ég skoraði átta mörk samtals í fyrra og ég ætla að skora meira en það.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.