Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 22. júní 2021 23:43
Brynjar Ingi Erluson
Noregur: Davíð Kristján spilaði í stórsigri
Davíð Kristján Ólafsson
Davíð Kristján Ólafsson
Mynd: Davíð Kristján Ólafsson
Davíð Kristján Ólafsson og félagar hans í norska liðinu Álasund unnu 5-1 sigur á Stjoerdals Blink í B-deildinni í dag.

Álasund hafði tapað síðustu tveimur leikjum sínum í deildinni og var því mikilvægt að svara því með öflugum sigri.

Davíð Kristján spilaði allan leikinni fyrir Álasund í bakverðinum en þetta er þriðji leikurinn í röð sem hann er í byrjunarliðinu.

Hann var á bekknum í fyrstu þremur leikjum deildarinnar en kom svo inn í liðið fyrir tæpur tveimur vikum og hefur tekist að festa sætið.

Álasund er í 8. sæti deildarinnar með 10 stig eftir fyrstu sjö leikina.
Athugasemdir
banner
banner
banner