22.07.04 - 13:50
Hafliði Breiðfjörð
Rivaldo til Olympiacos (Staðfest)




Sagan endalausa tók loks enda, Brasilíumaðurinn Rivaldo er búinn að finna sér félag til að leika með en hann skrifaði í dag undir tveggja ára samning við gríska liðið Olympiakos. Í Grikklandi sjá menn þetta sem stóran sigur að fá svona stjörnu í deildina sem kemur í kjölfar sigurs Grikkja á EM í sumar. Félagið gaf ekkert upp um peningahlið samningsins sem gefur möguleika á framlengingu þriðja árið. Þó er talið að Rivaldo fái hinsvegar um milljón punda (130 milljónir króna) fyrir hvert tímabil.
