22.07.04 - 14:15
Magnús Már Einarsson
Helveg til Norwich (Staðfest)

Helveg tekur í höndina á Nigel Worthington stjóra Norwich.


Helveg tekur í höndina á Nigel Worthington stjóra Norwich.

Norwich sem að sigraði ensku fyrstu deildina í vor hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í úrvalsdeildinni því danski varnarmaðurinn Thomas Helveg hefur skrifað undir tveggja ára samning við liðið en hann var án félags eftir að hafa farið frá Inter Milan. Hinn 33 ára gamli Helveg sem að einnig getur spilað á miðjunni sagði "Eftir 10 ár á Ítalíu er gott að fá möguleika á að leika í Englandi. Ég hef valið rétt lið, það hefur gott andrúmsloft"
Helveg byrjaði feril sinn hjá Odensen en hann hefur leikið fyrir Udinese og AC Milan auk Inter. Hann lék alla leiki Dana á EM í Portúgal í sumar og er ljóst að Norwich er að fá sterkan leikmann.
