Birta Georgs færir sig um set á Ítalíu (Staðfest)

Skrifar undir tveggja ára samning.

Mynd: Parma

Skrifar undir tveggja ára samning.

Mynd: Parma
Birta Georgsdóttir hefur fært sig um set á Ítalíu og er gengin í raðir Parma frá Genoa.
Birta skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Hún gekk í raðir Genoa frá Breiðabliki í janúar og spilaði tólf deildarleiki með félaginu sem féll niður um deild.
Parma endaði í ellefta sæti í ítölsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð af tólf liðum en aðeins eitt lið fellur niður úr deildinni. Hjá Parma hittir Birta sinn gamla liðsfélaga hjá Breiðabliki, Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur.
Birta er kærasta landsliðsmannsins Mikaels Egils Ellertssonar sem leikur með Genoa.

Hún á að baki tvo A-landsleiki og var hún valin besti leikmaður Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð.