Fotbolti.net
22.07.26 - 17:48
Brynjar Ingi Erluson

Casemiro til Inter Miami (Staðfest) - Félagaskiptin til rannsóknar

Casemiro til Inter Miami (Staðfest) - Félagaskiptin til rannsóknar
Canon

Mynd: Inter Miami

Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro var í dag kynntur til leiks sem nýr leikmaður Inter Miami í Bandaríkjunum.
Casemiro yfirgaf Manchester United um síðustu mánaðamót eftir að samningur hans rann út.

Inter Miami hafði haft augastað á Brasilíumanninum um nokkurt skeið en MLS-deildin hefur nú hafið rannsókn á mögulegum brotum félagsins í aðdraganda félagaskiptanna.

Los Angeles Galaxy hafði áður tryggt sér svokallaðan uppgötvunarrétt á Casemiro. Sá réttur veitti félaginu forgang innan MLS-deildarinnar og þýddi að Inter Miami þurfti að semja við Galaxy áður en hægt var að ganga frá félagaskiptunum.

„MLS-deildin rannsakar ásakanir um að Inter Miami hafi átt í ólögmætum samskiptum við Casemiro. Deildin er að afla viðeigandi upplýsinga og mun ekki tjá sig frekar fyrr en rannsókninni er lokið.“

„Inter Miami og LA Galaxy hafa náð samkomulagi um uppgötvunarréttinn á Casemiro en greint verður frá skilmálum þess þegar rannsókninni lýkur,“ segir í yfirlýsingu MLS-deildarinnar,“ segir í yfirlýsingu deildarinnar.

Casemiro, sem er 34 ára, skrifaði undir eins árs samning við Inter Miami með möguleika á tveggja ára framlengingu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.