22.07.26 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Gríðarlegt áfall fyrir Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: EPA
William Saliba, leikmaður Englandsmeistara Arsenal, þarf ekki að gangast undir aðgerð vegna bakmeiðsla en verður frá keppni um lengri tíma. Þetta staðfesti félagið í yfirlýsingu í kvöld.
Saliba var eins og klettur í vörn Arsenal þegar liðið varð enskur meistari í fyrsta sinn í 22 ár í vor.
Hann fór síðan með franska landsliðinu á HM en meiddist í undanúrslitaleiknum gegn Spáni og þurfti að fara af velli.
Miðvörðurinn glímir við bakmeiðsli en hann þarf ekki að fara í aðgerð. Þess í stað tekur við langt og strangt endurhæfingarferli.
Arsenal staðfesti í yfirlýsingunni að hann verði lengi frá en L'Equipe heldur því fram að hann gæti verið frá í allt að fjóra mánuði.
„Ítarlegar rannsóknir hafa leitt í ljós að ekki er mælt með aðgerð. William mun því strax hefja endurhæfingu vegna meiðslanna og búist er við að hann verði frá keppni um lengri tíma,“ segir í yfirlýsingu Arsenal.
Þetta eru skelfilegar fréttir fyrir Arsenal, en Saliba spilaði 31 deildarleik á síðustu leiktíð í liði sem fékk aðeins 27 mörk á sig yfir allt tímabilið.

William Saliba medical update.
— Arsenal (@Arsenal) July 22, 2026