Fotbolti.net
22.07.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Issa Diop til Ipswich (Staðfest)

Issa Diop spjallar við Ousmane Dembele á HM.

Issa Diop spjallar við Ousmane Dembele á HM.

Canon

Mynd: EPA

Ipswich Town hefur fengið marokkóska varnarmanninn Issa Diop frá Fulham. Kaupverðið er ekki gefið upp.

Diop er 29 ára og leék með Marokkó á HM. Hann hefur skrifað undir samning til sumarsins 2030.
Diop, sem er fyrrum leikmaður West Ham, kemur með talsverða úrvalsdeildarreynslu í Ipswich hópinn en liðið tryggði sér úrvalsdeildarsæti á síðasta tímabili.

„Ég er spenntur fyrir því að taka næsta skref á ferlinum með Ipswich. Ég veit hversu stórt félagið er og veit að þetta er rétti staðurinn fyrir mig," segir

Diop er sjötti leikmaðurinn sem Ipswich fær í sumar. Ganverski kantmaðurinn Abdul Fatawu kom frá Leicester fyrr í vikunni, og sóknarmaðurinn Emersonn kom frá Toulouse fyrr í þessum mánuði.

Áður hafði markvörðurinn Kayne van Oevelen komið frá Volendam í Hollandi og varnarmaðurinn Cedric Kipre og sóknarmaðurinn Chuba Akpom komið alfarið eftir vel heppnaðar lánsdvalir á síðasta tímabili.

Issa Diop til Ipswich (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.