Fotbolti.net
22.07.26 - 17:55
Brynjar Ingi Erluson

Skotmark PSG til Liverpool?

Skotmark PSG til Liverpool?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Enska félagið Liverpool hefur sett sig í samband við Mónakó varðandi kaup á franska leikmanninum Maghnes Akliouche en þetta segir Sky Sports.
Akliouche nálgast Evrópumeistarana
TENGT EFNI

Akliouche nálgast Evrópumeistarana

Akliouche er 24 ára og eitt helsta skotmark Evrópumeistara Paris Saint-Germain.

PSG hefur átt í viðræðum við Mónakó, sem hefur hafnað nokkrum tilboðum í leikmanninn. Síðasta tilboðið hljóðaði upp á 34 milljónir punda.

Sky Sports greinir frá því að Liverpool sé nú komið í baráttuna um Akliouche og hafi þegar sett sig í samband við Mónakó.

Akliouche getur bæði leikið á hægri vængnum og sem sóknartengiliður. Hann var í franska landsliðshópnum sem komst í undanúrslit HM í sumar og kom einu sinni við sögu á mótinu, þegar hann kom inn á í 3-0 sigri gegn Írak í riðlakeppninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.