22.07.26 - 19:56
Brynjar Ingi Erluson
Wöber riftir við Leeds og gengur í raðir Schalke (Staðfest)

Max Wöber var ekki lengi að finna sér nýtt félag

Mynd: Schalke 04

Leeds United og Max Wöber hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi austurríska leikmannsins en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag. Hann hefur samið við Schalke, sem verður nýliði í þýsku deildinni á komandi leiktíð.
Wöber er 28 ára varnarmaður sem gekk til liðs við Leeds frá Salzburg í janúar 2023.
Hann lék nítján leiki á sínu fyrsta hálfa tímabili en gat ekki komið í veg fyrir að Leeds félli niður í ensku B-deildina. Um sumarið var hann lánaður til Borussia Mönchengladbach, þar sem hann lék heilt tímabil áður en hann sneri aftur til Leeds.
Wöber kom aðeins við sögu í átta leikjum tímabilið 2024-25 þegar Leeds tryggði sér sæti á ný í úrvalsdeildinni. Á síðustu leiktíð hélt hann til Werder Bremen á láni en lék aðeins þrjá leiki vegna meiðsla aftan í læri.
Leeds og Wöber náðu samkomulagi um að rifta samningnum sem átti að renna út á næsta ári.
Hann var ekki lengi að finna sér nýtt félag og hefur samið við Schalke. Félagið vann þýsku B-deildina í vor og snýr því aftur í deild þeirra bestu á komandi tímabili.

???? #LUFC wishes Max Wöber all the best for the future as the defender departs the club
— Leeds United (@LUFC) July 22, 2026
Mehr dazu ? https://t.co/1EwCjoiFZq #S04 pic.twitter.com/fsGhdVtVfX
— FC Schalke 04 (@s04) July 22, 2026