Fotbolti.net
22.09.26 - 13:54
Elvar Geir Magnússon

Rúnar Páll framlengir við Gróttu (Staðfest) - Þriggja ára samningur

Rúnari Páli hefur liðið mjög vel hjá Gróttu.

Rúnari Páli hefur liðið mjög vel hjá Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Rúnar Páll Sigmundsson verður áfram þjálfari Gróttu en hann hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið.

Rúnar hefur verið orðaður við endurkomu til Stjörnunnar en nú er ljóst að hann verður áfram á Seltjarnarnesi. Undir hans stjórn komst ungt lið Gróttu upp í Lengjudeildina í fyrra og í ár endaði liðið í áttunda sæti.

„Ég er mjög ánægður með að endurnýja samninginn við Gróttu. Mér hefur liðið mjög vel hjá Gróttu síðastliðin tvö ár. Höfum náð markmiðum okkar bæði árin. Það er gott og duglegt fólk að vinna kringum liðið. Frábær og samheldinn leikmannahópur og gott þjálfarateymi. Ég hlakka mikið til að halda áfram að byggja upp gott lið og góða einstaklinga næstu árin," segir Rúnar Páll í tilkynningu Grótta.
Tilkynning Gróttu í heild sinni:
Rúnar Páll Sigmundsson og Paul Westren hafa framlengt samninga sína við knattspyrnudeild Gróttu og semja til þriggja ára.

Rúnar Páll Sigmundsson er knattspyrnuáhugafólki kunnugur en hann þjálfaði lið Stjörnunnar í um sjö ár og Fylki í þrjú ár. Undir stjórn Rúnars varð Stjarnan Íslandsmeistari sumarið 2014, bikarmeistari árið 2018 og lék fjölda Evrópuleikja.

Eftir svekkjandi fall niður í 2. deild haustið 2024 var stefnan hjá Gróttumönnum sett á að komast aftur upp í Lengjudeildina. Rúnar hóf störf hjá Gróttu í nóvember 2024 og ljóst var að verðugt verkefni var fyrir höndum í krefjandi deild með liðum hvaðanæva af landinu. Gróttumenn áttu frábært tímabil og stýrði Rúnar liðinu beint aftur upp í Lengjudeild karla.

Rúnar er spenntur fyrir uppbyggingu liðsins: „Ég er mjög ánægður með að endurnýja samninginn við Gróttu. Mér hefur liðið mjög vel hjá Gróttu síðastliðin tvö ár. Höfum náð markmiðum okkar bæði árin. Það er gott og duglegt fólk að vinna kringum liðið. Frábær og samheldinn leikmannahópur og gott þjálfarateymi. Ég hlakka mikið til að halda áfram að byggja upp gott lið og góða einstaklinga næstu árin’’.

Paul Westren kom til starfa hjá Gróttu vorið 2021 og hefur síðan þá þjálfað í yngri flokkum félagsins, starfað sem yfirþjálfari, styrktarþjálfari og var síðan ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í byrjun árs 2025. Paul hefur komið víða við á sínum ferli en hann hefur starfað í Kína, Síerra Leóne og Lesótó og því kynnst knattspyrnunni í ólíkum menningarheimum.

Paul er spenntur að halda áfram sínu starfi í Gróttu: „Síðustu tvö ár hafa verið frábær í starfi; við komumst aftur upp í Lengjudeildina í fyrstu tilraun og höfum síðan þá farið fram úr væntingum á þessu tímabili með góðri stöðu í deildinni og spennandi vegferð í bikarkeppninni þar sem við komumst í 8- liða úrslit. Það hefur einnig verið ánægjulegt að sjá marga unga leikmenn úr yngri flokkum félagsins vinna sér sæti í meistaraflokkshópnum en sumir þeirra hafa nú þegar leikið sína fyrstu leiki með liðinu. Ég hef gaman af samstarfinu við Rúnar og annað starfsfólk félagsins og hlakka til að takast á við þær áskoranir sem fram undan eru’’.
Rúnar var orðaður við endurkomu í Garðabæinn en verður áfram á Nesinu.

Rúnar var orðaður við endurkomu í Garðabæinn en verður áfram á Nesinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll framlengir við Gróttu (Staðfest) - Þriggja ára samningur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.