22.11.20 - 21:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Mjög sanngjarn sigur Liverpool á Leicester

Firmino fagnar marki sínu.

Mynd: Getty Images

Firmino fagnar marki sínu.

Mynd: Getty Images
<b>Liverpool 3 - 0 Leicester City</b>
1-0 Jonny Evans ('21 , sjálfsmark)
2-0 Diogo Jota ('41 )
3-0 Roberto Firmino ('86 )
1-0 Jonny Evans ('21 , sjálfsmark)
2-0 Diogo Jota ('41 )
3-0 Roberto Firmino ('86 )
Liverpool vann mjög sannfærandi sigur gegn Leicester City í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Bæði lið eru í meiðslavandræðum, og þá sérstaklega Liverpool en það voru lærisveinar Jurgen Klopp sem spiluðu betur í kvöld og unnu sanngjarnan sigur.
Á 21. mínútu skallaði Jonny Evans boltann í eigið net. Mjög klaufalegt sjálfsmark sem kom Englandsmeisturunum í forystu.
Harvey Barnes fékk mjög gott færi til að jafna stuttu síðar en setti boltann fram hjá úr skotfæri í vítateignum. Á 41. mínútu skoraði Diogo Jota með skalla eftir fyrirgjöf frá Andy Robertson.
Staðan var 2-0 fyrir Liverpool í hálfleik; þægileg staða Englandsmeistarana. Liverpool hélt áfram þar sem frá var horfið í seinni hálfleiknum og á 86. mínútu skoraði Roberto Firmino með skalla. Firmino hefði átt að skora nokkrum mínútum áður, en þetta er hans fyrsta mark á tímabilinu. Kærkomið fyrir Brasilíumanninn.
Liverpool vann leikinn 3-0 og fer núna upp að hlið Tottenham á toppi deildarinnar með 20 stig. Leicester er í fjórða sæti með 18 stig.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | +9 | 25 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 6 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 7 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 8 | Leeds | 10 | +2 | 14 |
| 9 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 10 | Hull City | 10 | +1 | 12 |
| 11 | Tottenham | 10 | -1 | 12 |
| 12 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 13 | Newcastle | 10 | -3 | 12 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | -2 | 10 |
| 16 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |