Fotbolti.net
22.11.26 - 23:09
Ívan Guðjón Baldursson

Roy Keane brjálaður: Klöppuðu fyrir rusli

Roy Keane brjálaður: Klöppuðu fyrir rusli
Canon

Mynd: EPA

Fótboltasérfræðingurinn Roy Keane, sem er fyrrum fyrirliði Manchester United, var allt annað en sáttur með orðræðu stuðningsmanna Man Utd á meðan liðið steinlá gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd
TENGT EFNI

England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd

Rauðu djöflarnir lentu manni undir snemma leiks og komst Liverpool í tveggja marka forystu beint í kjölfarið. Lokatölur urðu 4-0 en margir stuðningsmenn Man Utd voru jákvæðir og virtust ánægðir með baráttuna í sínum mönnum.

„Hefur engu liði nokkurn tímann tekist að ná í úrslit leikmanni færri? Það er alveg hægt," sagði Keane í beinni útsendingu.

„Fólk er að segja að þetta hafi ekki verið svo slæmt, eruði að segja mér að Man Utd hefði ekki getað gert betur en þetta? Leikmenn gátu alveg sýnt meiri baráttuvilja og gæði, ég trúi varla mínum eigin eyrum.

„Stuðningsmenn klöppuðu fyrir leikmönnum, klöppuðu fyrir hverju? Klöppuðu fyrir rusli. Hvenær ætla leikmennirnir að taka ábyrgð á ákvarðanatöku sinni á vellinum?

„Liverpool átti að skora átta eða níu mörk í þessum leik. Mig langar til að blóta. Hvernig getur nokkur maður sagt að 4-0 tap sé ekki svo slæmt?"
Roy Keane brjálaður: Klöppuðu fyrir rusli
Canon

Mynd: EPA

Roy Keane brjálaður: Klöppuðu fyrir rusli
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.