23.01.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Cafu til Japan (staðfest)
Brsilíski bakvörðurinn Cafu mun frá og með 1.júlí næstkomandi leika með Yokohama í Japönsku J-deildinni. Þetta er ein af stærri U-beygjum sem farnar hafa verið en talið var að Cafu færi til Englands eða heim til Brasilíu. Þessi 32 ára bakvörður er laus undan samningi hjá Roma í sumar og því þarf Yokohama ekkert að borga fyrir kauða. Maður dregur það auðvitað stórlega í efa að launaumslagið hjá Japönunum hafi fengið Cafu til þeirra. Eða hvað ?
