Stórleikur Chelsea og Tottenham hefst kl 16:30. Þetta er algjör sex stiga leikur. Chelsea þarf á sigri að halda til að halda sér í titilbaráttunni og Tottenham þarf á sigri að halda til að halda sér í baráttunni um Evrópusæti.
Byrjunarliðin eru komin í hús. Það vekur athygli að Malang Sarr er í byrjunarliði Chelsea í dag. Hann er í miðverðinum með Antonio Rudiger og Thiago Silva. Matteo Kovacic er á miðjunni.
Marcos Alonso og N'golo Kante byrjuðu í jafntefli gegn Brighton í síðustu umferð en þeir setjast á bekkinn í dag.
Steven Bergwijn er í byrjunarliði Tottenham en hann kom inná sem varamaður gegn Leicester í síðustu umferð og skoraði tvö mörk í uppbótartíma sem tryggði liðinu 3-2 sigur.
Þá er Eric Dier mættur aftur í byrjunarliðið eftir að hafa misst af síðustu fimm leikjum vegna meiðsla.
Chelsea: Kepa, Rudiger, Silva, Sarr, Azpilicueta, Jorginho, Kovacic, Hudson-Odoi, Mount, Ziyech, Lukaku.
Tottenham: Lloris, Doherty, Tanganga, Dier, Sanchez, Davies, Winks, Hojbjerg, Bergwijn, Sessegnon, Kane.
Athugasemdir