Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 23. janúar 2023 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Zinchenko: Þarf að horfa á þetta aftur áður en ég fer að sofa
Oleksandr Zinchenko naut sín á Emirates í gær
Oleksandr Zinchenko naut sín á Emirates í gær
Mynd: EPA
Enginn fagnaði meira en Oleksandr Zinchenko er Eddie Nketiah skoraði sigurmark Arsenal undir lok leiks gegn Manchester United á Emirates í gær.

Zinchenko átti sendingu fyrir markið og fór boltinn af Martin Ödegaard og í áttina að Nketiah sem spyrnti boltanum með hælnum og í netið.

Úkraínumaðurinn hljóp í átt að stúkunni og faðmaði stuðningsmenn í kjölfarið.

„Ég elska að vinna. Þessi sigurtilfinning á síðustu mínútu leiksins og síðustu sekúndunni er eitthvað sem ekki er hægt að koma í orð,“ sagði Zinchenko.

„Þetta var ótrúlegur dagur. Ég þarf að horfa á þetta aftur áður en ég fer að sofa því þetta eru töfra augnablikin.“

Arsenal þurfti að bíða eftir niðurstöðu frá VAR eftir sigurmarkið og var mikill léttir fyrir heimamenn þegar það var gefið.

„Nokkrir af strákunum sögðu mér að þetta væri tæpt en þetta er ekki svona augljóst á vellinum. Ég vildi bara njóta augnabliksins. Eftir að dómarinn fór að skoða VAR þá var ekki andardráttur á vellinum í tíu sekúndur, en viðbrögðin voru geggjuð eftir að markið var gefið,“ sagði Úkraínumaðurinn í lokin.
Athugasemdir
banner