Fotbolti.net
23.05.22 - 20:45
Ívan Guðjón Baldursson

Mendy lýsir yfir sakleysi - Réttarhöld hefjast í júlí

Mendy lýsir yfir sakleysi - Réttarhöld hefjast í júlí
Canon

Mynd: Getty Images

Benjamin Mendy, vinstri bakvörður Manchester City og franska landsliðsins, hefur ekki spilað fótboltaleik síðan í ágúst og ekki miklar líkur á að hann muni nokkurn tímann spila aftur sem atvinnumaður.

Mendy var kærður fyrir nauðganir síðasta haust og sat í gæsluvarðhaldi í sex mánuði áður en honum var sleppt gegn tryggingu í janúar.

Réttarhöldin yfir honum hefjast 25. júlí en alls er Mendy ákærður fyrir níu brot gegn sex konum, þar af eru sjö nauðgunarbrot.

Öll brotin eru sögð hafa átt sér stað á heimili Mendy milli október 2018 og ágúst 2021 

Mendy er 27 ára gamall og lýsti yfir sakleysi sínu þegar hann mætti fyrir dómara í dag. Hann ætlar að berjast gegn þessum ákærum ásamt lögfræðiteymi sínu.

Félagi hans Louis Saha Matturie, 40 ára gamall og óskyldur fyrrum fótboltakappanum Louis Saha, var kærður í tólf liðum og lýsti einnig yfir sakleysi.

Báðir mennirnir eru frjálsir ferða sinna eftir að hafa borgað tryggingargjald.

Mendy hefur spilað 75 leiki fyrir Manchester City og 10 fyrir franska landsliðið.

Mendy lýsir yfir sakleysi - Réttarhöld hefjast í júlí
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.