Fotbolti.net
23.06.26 - 12:38
Kári Snorrason

Sjáðu sturlað mark Dagbjarts í Breiðholti

„Erfiðleikastig upp á 11.“

„Erfiðleikastig upp á 11.“

Canon

Mynd: Skjáskot

Lengjudeildin
Hinn tvítugi Dagbjartur Búi Davíðsson skoraði eitt af mörkum tímabilsins í Lengjudeildinni síðastliðinn sunnudag er Völsungur gerði 4-4 jafntefli við ÍR á Þarfaþingsvellinum í Breiðholti.

Leikurinn sjálfur hafði verið einstök skemmtun og setti Dagbjartur kirsuberið ofan á kökuna þegar hann jafnaði metin með viðstöðulausu skoti á lofti fyrir utan teig.
Sverrir Örn Einarsson skrifaði um leikinn og valdi Dagbjart bestan: 'Voru aðrir leikmenn með meira framlag á öðrum sviðum á vellinum en hann? Já 100% en þetta mark maður...... erfiðleikastuðull upp á 11 í skotinu sem í 99 af 100 tilfellum flýgur hátt yfir. Það gerði það ekki í þetta sinn heldur söng í í bláhorninu sem skilar honum þessu í dag,' stóð í skýrslu Sverris.

Hægt er að sjá markið glæsilega hér að neðan.


Dagbjartur er fæddur árið 2006.

Dagbjartur er fæddur árið 2006.

Canon

Mynd: Völsungur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.