Danijel gráti næst - „Grímsi er mesta goðsögnin í KA"
Auglýsing

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
KA vann dramatískan sigur á ÍA í Bestu deildinni í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Danijel Dejan Djuric sem kom að tveimur mörkum KA.
Lestu um leikinn: KA 3 - 2 ÍA
„Ég veit ekki hvað ég á að segja. Þetta var rosalegur leikur. Allar tilfinningarnar en manni leið eins og við vorum alltaf með þá frá fyrstu mínútu," sagði Danijel.
„Við vorum búnir að vinna svo mikið í fyrri hálfleik að seinni hálfleikur var alltaf að fara verða góður. Við komum sultu slakir inn í klefa. þetta var alltaf að fara koma fannst mér. Þú færð alltaf það sem þú ert búinn að vinna fyrir. Ég er búinn að vera hérna frá átta til fjögur alla daga að vinna hart. Þetta skila sér alltaf."
Danijel fékk vítaspyrnu í blálokin og Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði í annarri tilraun eftir að Jón Sölvi Símonarson varði frá honum.
„Ég sé kross og ég ætla fara fyrir framan hann. Þá kemur boltinn, ég ætla að fara setja hann en svo er rifið í mig og ég hugsa að þetta sé hundrað prósent víti. Ég ætlaði að fara til Grímsa og spyrja hann um að taka vítið. En þetta er mesta goðsögnin í KA. Virðing á Grímsa, þetta er mesti meistari í heimi," sagði Danijel.
„Ég vissi að boltinn myndi fara þangað og ég var tilbúinn en hann fékk hann aftur. Þetta var gott að við unnum þennan leik."
Það hefur verið góð tilfinning að sjá boltann fara inn
„Já, líka fyrir fólkið. Fólkið var að syngja nafnið mitt eftir á. Ég var eiginlega að fara að gráta. Maður er stoltur af fólkinu sem kemur alltaf og styðja við okkur. Þetta er fyrir það líka."