Fotbolti.net
12.07.26 - 23:53
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Ánægður Jói Kalli hrósar Gils - „Sýnir alvöru hugarfar, vilja og gæði"

Auglýsing
Ánægður Jói Kalli hrósar Gils - „Sýnir alvöru hugarfar, vilja og gæði"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Frábær frammistaða hjá okkar mönnum í dag, mikill vilji og hugarfar í erfiðum leik" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH eftir 2-0 sigur á Val.

Lestu um leikinn: FH 2 - 0 Valur

„Valur er með frábært lið og góðan hóp, mér fannst þetta vera frábær frammistaða og verðskuldað þennan sigur, þó að hann hafi verið kaflaskiptur þessi leikur. þá fannst mér við hafa að mestu leyti yfirhöndina í fyrri hálfleik, þannig að ég er virkilega sáttur."

„Við sköpuðum okkur ansi góð færi til þess að skora, Frederik varði hérna frábærlega eftir horn til að mynda frá Úlfi. Mér fannst það vera ótrúlega varsla. Við vorum að komast í góðar skotstöður til þess að skora fleiri mörk. En það sem ég er ánægður með að strákarnir létu það ekki hafa áhrif á sig, eitthvað svekkelsi að hafa ekki skorað í hálfleik. Svo meira segja koma Valsararnir aðeins af meiri krafti en áður, en náðu stjórn á leiknum snemma í fyrri hálfleik. Menn létu það ekki hafa áhrif á sig."

„Í stöðunni núll núll þá fáum við tvö alveg dauðafæri í seinni hálfleik þar sem menn ákveða að negla boltanum á markið í stað þess að koma honum í hornið. Að sama skapi létum við það ekki trufla okkur."

„Náum svo tveimur frábærum mörkum þar sem Gils sýnir alvöru hugarfar, vilja og gæði til þess að  hjálpa liðinu og komast frábæra stöðu til þess að skora þessi tvö mörk og hann hefði jafnvel geta skorað þrennuna hérna í lokin."

Jói fékk gult spjald í dag, af hverju?

„Ég var eitthvað of æstur á hliðarlínunni og fékk sennilega verðskuldað gult spjald."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.