Einn af átján í nefndinni tók ákvörðunina um að aflétta banni Balogun

Folarin Balogun fékk rautt en fékk ekki bann.

Mynd: EPA

The Times segir að sú umdeilda ákvörðun að aflétta leikbanni Folarin Balogun, sóknarmanns Bandaríkjanna, hafi aðeins verið tekin af formanni aganefndar FIFA en ekki hafi verið rætt við aðra sautján meðlimi nefndarinnar.
Balogun fékk beint rautt spjald í 2-0 sigri gegn Bosníu og Hersegóvínu í 16-liða úrslitum og hefði átt að taka út leikbann gegn Belgíu en banninu var aflétt.

TENGT EFNI
Trump dásamar Infantino og viðurkennir að hafa haft afskipti
Þegar það voru innan við tveir sólarhringar í leikinn tilkynnti FIFA að Balogun þyrfti ekki að taka út leikbann. Ákvörðunin var gríðarlega umdeild og hlaut meðal annars harða gagnrýni UEFA.
Donald Tump forseti Bandaríkjanna viðurkenndi að hafa tekið upp símann og hringt í Gianni Infantino, forseta FIFA, áður en banninu var aflétt.
Nú er sagt að Mohammad al-Kamali, formaður nefndarinnar, hafi upp á sitt einsdæmi tekið ákvörðunina. Hann er frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu HM sem leikmaður sem fær rautt spjald og fær leikbann sitt fellt niður. Bandaríska landsliðið tapaði umræddum leik gegn Belgíu 4-1 og féll úr leik.