Fotbolti.net
13.07.26 - 11:53
Elvar Geir Magnússon

Man Utd gæti snúið sér aftur að Ederson seinna í glugganum

Ederson féll á læknisskoðun.

Ederson féll á læknisskoðun.

Canon

Mynd: EPA

Eins og fjallað hefur verið um í morgun er Manchester United að tryggja sér Youri Tielemans, leikmann Aston Villa.

United ákvað að vinna í að fá þennan belgíska miðjumann eftir að félagið hætti við Ederson þar sem hann féll á læknisskoðun. Eftir skoðun komu í ljós áhyggjur með hnémeiðsli.

Samkvæmt heimildum BBC gæti United snúið sér aftur að Ederson seinna í glugganum, eftir því hvernig málin á markaðnum þróast.
Tielemans með riftunarákvæði sem Man Utd nýtir
TENGT EFNI

Tielemans með riftunarákvæði sem Man Utd nýtir

Fulltrúar United finna til með leikmanninum en töldu sig þurfa að taka ákvörðun sem væri best fyrir félagið.

Brasilíumaðurinn Ederson er 27 ára og er mikilvægur hlekkur í liði Atalanta á Ítalíu en er aðeins með eitt ár eftir af samningi við félagið. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Atlético Madrid og hin ýmsu úrvalsdeildarfélög eins og Newcastle og Tottenham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.