Fotbolti.net
13.07.26 - 13:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Valur að krækja í mikinn markaskorara

Emma Hawkins.

Emma Hawkins.

Canon

Mynd: FHL

Hertz
Valur er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að krækja í Emmu Hawkins sem spilaði áður með FHL í Lengjudeildinni.

Hún var mætt á Hlíðarenda á leik Vals og Stjörnunnar sem fór fram síðasta föstudagskvöld.
Félagaskiptaglugginn fer að opna og Valur hefur þegar fengið Ragnheiði Þórunni Jónsdóttur aftur inn í hópinn úr láni frá hollenska félaginu Zwolle.

„Ragnheiður kemur og er búin að vera að æfa með okkur og það er þvílíkur styrkur fyrir okkur. Svo ætlum við að taka aðra, eða það kemur önnur styrking sem verður örugglega komin í fjölmiðla eitthvað fljótlega," sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir leikinn gegn Stjörnunni.

Hawkins lék með FHL sumarið 2024 og skoraði þá 24 mörk í 14 leikjum í Lengjudeildinni. Hún og Samantha Smith, sem lék með Breiðabliki í fyrra, léku sér að Lengjudeildinni sumarið 2024.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.