Iraola: Vill vera í góðri tengingu við borgina og stuðningsmenn

Iraola fyrir utan æfingasvæði Liverpool.

Mynd: EPA

Klassísk treflamynd.

Andoni Iraola segist vilja gefa Liverpool stuðningsmönnum lið sem þeir geta verið stoltir af og segist vera tilbúinn í að axla þá ábyrgð að verða stjóri hjá svona stóru félagi.
Í síðasta mánuði var Iraola staðfestur sem nýr stjóri Liverpool eftir þrjú góð ár hjá Bournemouth. Liverpool náði ekki sínu besta fram undir stjórn Arne Slot á síðasta tímabili og hann var látinn taka pokann sinn.

„Liverpool snýst um tengsli, tengingu við fólkið, við stuðningsmennina. Ég hef prófað að vera á hinum endanum á Anfield. Ég upplifði sigurmarkið sem Federico Chiesa skoraði gegn Bournemouth í fyrstu umferð síðasta tímabils. Maður gat fundið fyrir stuðningsmönnum og ég myndi elska ef það yrði þannig alltaf þegar við spilum," segir Iraola.
Hann sat í fyrsta sinn fyrir svörum á fréttamannafundi sem stjóri Liverpool í dag.
„Við þurfum að vera lið með mikla vinnusemi, lið sem er sókndjarft og beinskeytt. Ég er tilbúinn fyrir verkefnið, ég geri mér grein fyrir því að þetta er risastórt félag. Það er rýnt í hvert einasta orð sem ég segi og ég þarf að passa mig á að gera ekki mistök en maður vill samt ekki vera of varfærinn."
„Ég ætla ekki að lifa í búbblu, vera bara heima og á æfingasvæðinu. Ég vil fara inn í borgina og upplifa hana. Ég veit um nokkra staði sem ég vil taka myndir af. Það er hluti af töfrum þess að vera stjóri Liverpool."
Iraola gerði tveggja ára samning við Liverpool, styttri samning en venjan er hjá flestum stórum félögum. En það er í takt við samninga sem hann hefur gert áður.
„Samningalengdin hjá þjálfurum skiptir ekki miklu máli. Ég vil ekki vera á einhverjum stað bara því ég er með samning. Hjá þjálfurum er þetta bara eitt ár í einu. Ég vona að ég verði hér lengur en í tvö ár, það þýðir að ég hef unnið gott starf. Stjórar þurfa að vinna fyrir því að halda áfram, sérstaklega hjá félagi eins og Liverpool. Ég hef alltaf gert þetta svona."
Þurfa fleiri leikmenn
Iraola hefur þegar talað við flesta leikmenn sína hjá Liverpool og segist hafa átt mjög góð samtöl. Félagið hefur fengið tvo leikmenn fyrir nýtt tímabil, varnarmanninn Jeremy Jacquet frá Rennes og kantmanninn Victor Munoz frá Osasuna.
„Við þurfum fleiri leikmenn og við vitum það. Félagið er að vinna í þessum málum. Það verið að leggja miklu vinnu í það og ég reyni að hjálpa líka," segir Iraola.
Liverpool vill fá allavega einn sóknarleikmann og einn varnarleikmann. Þá staðfestir Iraola að Harvey Elliot muni fá tækifæri til að sanna sig á undirbúningstímabilinu. Liðið er á leið til Bandaríkjanna í æfingaferð og framundan eru leikir gegn Sunderland, Wrexham og Leeds United.
Elliot, sem er 23 ára, fór á lán til Aston Villa á síðasta tímabili en spilaði aðeins 110 mínútur í ensku úrvalsdeildinni.
„Síðasta tímabil var erfitt fyrir Harvey. Þetta var furðuleg staða og ég held að hann noti þessa reynslu til að verða enn ákveðnari í að verða Liverpool leikmaður," segir Iraola.

?????? "I'm not gonna live in my bubble, just training ground, home.
— This Is Anfield (@thisisanfield) July 13, 2026
"I would also like to go to the city, experience the city. I know some places. I will have to take some pictures!"
Andoni Iraola wants to experience all of Liverpool, not just the club. pic.twitter.com/IlTFA2z7Ob

Klassísk treflamynd.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA