Fotbolti.net
13.07.26 - 10:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aron Einar aðstoðarþjálfari Þórs í gær - „Ætla rétt að vona að það komi inn styrking núna á næstu dögum"

Aron Einar

Aron Einar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson var skráður aðstoðarþjálfari Þórs í gær þegar liðið heimsótti Fram í Bestu deildinni. Aron Einar hefur verið orðaður við heimkomu og sagði Fótbolti.net frá því í síðasta mánuði að Aron væri að yfirgefa Katar og væri á leið heim í Þór.

Eiður Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfari Þórs, tók út leikbann í gær og var Aron skráður sem aðstoðarþjálfari á skýrslunni í gær. Þór steinlá í leiknum, 1-6 lokatölur.
Lestu um leikinn: Fram 6 - 1 Þór
Siguður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, var spurður út í Aron í viðtali eftir leikinn.

„Já, ég er að vona að það klárist (og hægt verði að kynna Aron fljótlega) og svo vonandi einhverjir 2-4 í viðbót. Við erum að vinna í þessum málum og ég ætla rétt að vona að það komi inn styrking núna á næstu dögum og fleiri en ein og fleiri en tvær."

„Það er búið að höggva aðeins í hópinn og við erum ekki búnir að vera heppnasta liðið í deildinni - það loðir oft við liðin í neðri helmingnum. Við munum styrkja liðið, það er klárt,"
segir Siggi.

Félagaskiptaglugginn opnar á fimmtudag og næsti leikur Þórs verður á heimavelli gegn Víkingi á laugardag.
Siggi Höskulds

Siggi Höskulds

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi Höskulds: Versta sem ég hef séð síðan ég kom í Þór

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik13+722
5Valur15-519
6Keflavík13-616
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.