Sannanir fyrir því að boltinn fór ekki í vír

Bellingham og Haaland faðmast eftir leikinn.

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bellingham og Haaland faðmast eftir leikinn.

Mynd: EPA
Daily Mail segir að búið sé að staðfesta að fyrra mark Jude Bellingham í 2-1 sigri Englands á Noregi hafi réttilega verið látið standa. Norðmenn héldu því fram að boltinn hefði lent á vír sem hélt uppi myndavél á vellinum og breytt um stefnu eftir útspark markvarðarins Örjan Nyland.
Ef það hefði gerst hefði með réttu átt að stöðva leikinn, dæma markið af og framkvæma dómarakast.
FIFA ku hafa skoðað þetta atvik og blaðamenn Daily Mail hafa séð upptökur sem sýni náttúrulegt flug á boltanum. Þá sýni upptaka úr sjálfri myndavélinni sem er hengd á vírinn engan hristing.

TENGT EFNI
Norðmenn brjálaðir - „Fótbolti og VAR ætti að fara til helvítis"
Upptaka hefur farið í mikla dreifingu þar sem sjónarhornið virðist sýna að boltinn breyti um stefnu en samkvæmt nýjustu fréttum gefur það upp falska mynd. Frá öðrum sjónarhornum sjáist að boltinn flýgur náttúrulega og þá hafa myndir verið skoðaðar ítarlega sem sýni að enginn vír hafi verið í nálægð við boltann. Skynjarinn í boltanum greindi þá enga snertingu eins og FIFA hafði þegar gefið út.
Before England’s goal in minute 45+2 against Norway, the sensor in the Connected Ball showed no peak in the 'heartbeat of the ball' when in the air, and therefore no evidence that the ball touched the overhead wire and changed the movement of the ball. pic.twitter.com/gYf9ukfveT
— FIFA Media (@fifamedia) July 11, 2026
Fresh evidence suggests that Jude Bellingham's controversial first goal against Norway was right to stand after all????
— Daily Mail Sport (@MailSport) July 13, 2026
????https://t.co/XKaNPCL56E pic.twitter.com/GGVslJelJ1

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð