Adam verður leikmaður KA


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ægir Pálsson er á leið í KA og mun samkvæmt Alberti Brynjari Ingasyni í Dr. Football skrifa undir samning sem gildir út tímabilið. Fótbolti.net hefur fengið staðfest að stefnt sé að því að kynna Adam sem leikmann KA seinna í dag.
Fótbolti.net sagði frá því fyrir helgi að Adam væri í viðræðum við Akureyrarfélagið.
Fótbolti.net sagði frá því fyrir helgi að Adam væri í viðræðum við Akureyrarfélagið.

TENGT EFNI
Adam Páls í viðræðum við KA
Adam var í hlutverki hjá Val framan af tímabilinu en spilaði svo ekkert í júní. Í júlí hefur hann ekki verið í hóp og hefur ekki æft með liðinu að undanförnu.
Adam er kantmaður, fæddur 1998, og hefur verið hjá Val síðan 2023. Hann kom að fjórum mörkum í átta byrjunarliðsleikjum hjá Val á tímabilinu.
Adam er kantmaður, fæddur 1998, og hefur verið hjá Val síðan 2023. Hann kom að fjórum mörkum í átta byrjunarliðsleikjum hjá Val á tímabilinu.




