Fotbolti.net
13.07.26 - 15:40
Mate Dalmay
Skrifar frá: Györ

Tala um stórslys ef Györ tapar - Gylfi segir Víkinga fulla sjálfstrausts

Auglýsing
Víkingar í sólinni í Györ.

Víkingar í sólinni í Györ.

Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Víkingar flugu til Ungverjalands um helgina og eru að undirbúa sig fyrir leikinn gegn ungversku meisturunum í Györ. Fyrri leikur liðanna endaði með 1-0 sigri Víkings í síðustu viku og seinni leikurinn fer fram ytra á morgun.

Gylfi Þór Sigurðsson ræddi við Fótbolta.net í Györ í dag en hann býst við allt öðruvísi leik en í fyrri leiknum.
Ekroth fagnar sólinni í Györ - „Voru nánast með sex manna varnarlínu“
TENGT EFNI

Ekroth fagnar sólinni í Györ - „Voru nánast með sex manna varnarlínu“

„Ég held það. Við bjuggumst við að þeir myndu spila öðruvísi í fyrri leiknum. Nú eru þeir á heimavelli og þetta verður væntanlega öðruvísi leikur. Við bjuggumst að þeir yrðu meira með boltann í fyrri leiknum en þetta var þeirra fyrsti alvöru leikur á tímabilinu og þetta var vel spilað hjá okkur. Ég býst við því að þeir taki meiri áhættu núna," segir Gylfi.

Ungverskir fjölmiðlar setja mikla pressu á Györ að klára einvígið og segja að það yrði stórslys ef liðið tapar gegn Víkingi.

„Ef við horfum á hvað þeir eru að leggja í liðið samanborið við okkur, og verandi ungverskir meistarar, þá eru þeir stærra liðið. En við erum á góðu skriði og með mikið sjálfstraust. Við höfum þannig lagað séð engu að tapa en stefnan hjá okkur er að komast áfram."

Viðtalið er í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Gylfi meðal annars um stöðu mála í deildinni heima og líkamlegt álag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.