Fotbolti.net
13.07.26 - 15:59
Elvar Geir Magnússon

Alonso hefur rætt við Enzo og vill halda honum hjá Chelsea

Enzo Fernandez kom til umræðu á fréttamannafundi Alonso.

Enzo Fernandez kom til umræðu á fréttamannafundi Alonso.

Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso, stjóri Chelsea, vill halda Enzo Fernandez hjá félaginu. Þessi 25 ára argentínski landsliðsmaður hefur verið að hugsa sér til hreyfings og var nýlega orðaður við Real Madrid.

Spænska stórliðið neitaði því hinsvegar í síðustu viku að vera að vinna í að fá hann. Það er því erfitt að sjá hvar Enzo gæti endað en hann er með 120 milljóna punda verðmiða á sér.
Real Madrid gefur út yfirlýsingu vegna orðróms um Enzo
TENGT EFNI

Real Madrid gefur út yfirlýsingu vegna orðróms um Enzo

„Já,“ svaraði Alonso þegar hann var spurður að því hvort hann vildi halda Enzo Fernandez í hópnum.

„Við höfum rætt saman en eins og þið getið skilið þá er það sem fór okkar á milli einkamál.“

Alonso sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og var víða komið við. Alonso staðfesti að Nicolas Jackson færi með liðinu í æfingaferð til Ástralíu og Asíu en Bayern München ákvað að kaupa sóknarmanninn ekki eftir lánsdvölina.

„Nico Jackson fer með okkur í ferðina og við erum spenntir fyrir því að vinna með honum."

Kantmaðurinn Alejandro Garnacho hefur hinsvegar ekki verið að æfa og segir Alonso að samkomulag sé um að hann æfi ekki á meðan hann leiti sér að nýju félagi. Roma á Ítalíu er meðal félaga sem hafa áhuga á honum.
Xabi Alonso.

Xabi Alonso.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.