Fotbolti.net
13.07.26 - 14:32
Mate Dalmay
Skrifar frá: Györ

Ekroth fagnar sólinni í Györ - „Voru nánast með sex manna varnarlínu“

Auglýsing
Víkingar í Györ í morgun.

Víkingar í Györ í morgun.

Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Víkingar flugu til Ungverjalands um helgina og eru að undirbúa sig fyrir leikinn geng ungversku meisturunum í Györ. Fyrri leikur liðanna endaði með 1-0 sigri Víkings í síðustu viku og seinni leikurinn fer fram ytra á morgun.

Mate Dalmay ræddi við Oliver Ekroth, fyrirliða Víkings, í Györ í dag og naut sænski varnarmaðurinn sín vel í sólinni.
Myndaveisla: Fyrsti dagur Víkinga í Györ
TENGT EFNI

Myndaveisla: Fyrsti dagur Víkinga í Györ

„Við höfum yfir engu að kvarta. Þetta er falleg borg, veðrið er gott og það er leikdagur á morgun," segir Ekroth, sannfærður um að Íslandsmeistararnir muni höndla allar aðstæður vel á morgun.

„Við erum búnir undir allt. Þeir þurfa augljóslega að vinna og munu örugglega mæta öðruvísi til leiks en þeir gerðu í fyrri leiknum. Við einbeitum okkur samt helst að því hvað við ætlum að gera. Við mætum fullir orku í leikinn og ætlum að vinna þennan leik."

Györ mætti í fyrri leikinn með varnarupplegg og segir Ekroth það vissulega hafa aðeins komið á óvart hversu varnarsinnaðir þeir voru.

„Það kom kannski hversu mikið þeir féllu til baka, það var nánast eins og þeir væru með sex manna varnarlínu. Við vitum líka hversu sterkir við erum á heimavelli," segir Ekroth.

„Við sjálfir setjum mikla pressu á okkur, við viljum fara langt í Evrópu og vinna alla andstæðinga sem við mætum. Við viljum keppa í öllum keppnum. Við förum í þennan leik á morgun með það markmið að vinna leikinn, við erum ekki að fara að mæta til að verja forskotið."
Ekroth fagnar sólinni í Györ - „Voru nánast með sex manna varnarlínu“
Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.