23.07.04 - 16:50
Hafliði Breiðfjörð
Cahill til Everton (Staðfest)




Tim Cahill leikmaður Millwall gekk í dag í raðir Everton og gerði fjögurra ára samning við félagið. Ekkert varð af félagaskiptum hans til Crystal Palace í síðustu viku eftir að Simon Jordan stjórnarformaður Palace setti sig á móti þvi að skipta við umboðsmann hans. Cahill komast svo í gegnum læknisskoðun hjá Everton í dag og gerði í kjölfarið samninginn. Cahill er 25 ára gamall Ástrali sem gekk í raðir Millwall fyrir sjö árum eftir að hafa komið frá Sidney United. Hann verður ekki með Everton í upphafi leiktíðar því hann verður með Ástralíu á Ólympíuleikunum í Aþenu. Hann skoraði 57 mörk í 249 leikjum með Millwall.
