23.07.04 - 16:54
Parlour til Middlesbrough (Staðfest)

Kominn til Middlesbrough.

Kominn til Middlesbrough.

Middlesbrough hafa staðfest að Ray Parlour sé orðinn leikmaður þeirra. Hann fór til félagsins frá Englandsmeisturum Arsenal á frjálsri sölu og skrifaði Parlour undir þriggja ára samning.
Þessi 31 árs gamli leikmaður fór til Teesside á fimmtudag eftir að Boro og Arsenal höfðu komist að samkomulagi. Steve McClaren, stjóri Midlessbrough, sagði; ,,Ég er í skýjunum, reynslan hans er mikilvæg og hann er frábær leikmaður sem hefur átt góðan feril."
,,Hann hefur gott viðhorf og það er það sem skiptir mestu máli, þú veist að hann leggur sig 100% fram og hann hefur hungrið til þess að vinna." Steve Kutner, umboðsmaður kappans hefur viðurkennt það að UEFA Cup hafi skipt miklu máli þegar Parlour ákvað sig hvort hann vildi flytja sig um set.
,,Ray er mjög áhugasamur og hann hlakkar mikið til þess að spila fyrir Middlesbrough í Evrópu á næstu leiktíð. Middlesbrough og Arsenal hafa komist að samkomulagi og Ray er búinn að skrifa undir 3 ára samning." sagði Steve Kutner.