Fotbolti.net
23.07.21 - 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

2. deild: Gleði á Húsavík - Grænir upp í annað sæti

Elvar er mættur aftur í Völsung og hann skoraði.

Elvar er mættur aftur í Völsung og hann skoraði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson

<b>Völsungur 4 - 0 Fjarðabyggð</b>
1-0 Arnar Pálmi Kristjánsson
2-0 Sæþór Olgeirsson
3-0 Ásgeir Kristjánsson
4-0 Elvar Baldvinsson
Völsungur er heldur betur á góðu róli í 2. deild karla en þeir fóru illa með Fjarðabyggð í kvöld.

Arnar Pálmi Kristjánsson kom Völsungi á bragðið og Sæþór Olgeirsson, sem hefur verið magnaður í markaskorun í sumar, bætti við marki úr vítaspyrnu fyrir leikhlé.

Ásgeir Kristjánsson gerði þriðja markið og Elvar Baldvinsson, sem er nýkominn aftur til Völsungs á láni frá Þór, gerði fjórða markið áður en flautað var af.

Lokatölur 4-0 og er Völsungur núna í öðru sæti deildarinnar með 23 stig. Fjarðabyggð er á botni deildarinnar.

Völsungur hefur núna unnið fjóra leiki í röð og er heldur betur að blanda sér í baráttuna um að komast upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.