Fotbolti.net
23.07.26 - 12:10
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Adeyemi til Barcelona (Staðfest)

Ekki blikka.

Ekki blikka.

Canon

Mynd: Barcelona

Barcelona hefur keypt þýska framherjann Karim Adeyemi frá Borussia Dotmund.

Um er að ræða 22 milljóna evra kaupverð sem gæti náð upp í 29 milljónir með ákvæðum.

Að auki mun þýska félagið fá prósentu af framtíðarsölu þessa 24 ára leikmanns.

Adeyemi var í fjögur tímabil hjá Dortmun og er annar leikmaðurinn sem Spánarmeistararnir fá í sumar eftir að Anthony Gordon var keyptur frá Newcastle.

Hansi Flick þjálfari Barcelona þekkir Adeyemi vel en undir hans stjórn lék hann sinn fyrsta landsleik með Þýskalandi.

Adeyemi er fjölhæfur og getur leyst allar þrjár fremstu stöðurnar. Hann skoraði 36 mörk í 146 leikjum fyrir Dortmund en hann kom til félagsins frá RB Salzburg 2022.
Adeyemi í leik með Dortmund.

Adeyemi í leik með Dortmund.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.