Fotbolti.net
23.07.26 - 15:32
Kári Snorrason

Arnór í ótímabundið leyfi af persónulegum ástæðum

Tók við stöðunni síðasta sumar.

Tók við stöðunni síðasta sumar.

Canon

Mynd: Hammarby

Arnór Smárason hefur tekið sér ótímabundið leyfi frá starfi sínu sem íþróttastjóri kvennaliðs Hammarby af persónulegum ástæðum.

Félagið greindi frá þessu á heimasíðu sinni fyrr í dag. Þar segir Adrian Bage von Heijne, yfirmaður knattspyrnumála hjá Hammarby, að félagið vonist til að Arnór snúi aftur til starfa sem fyrst.
Arnór hefur gegnt starfinu í rúmt ár, en hann kom til Hammarby frá Val þar sem hann starfaði sem yfirmaður knattspyrnumála.

Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir er á mála hjá félaginu sem er í öðru sæti í sænsku úrvalsdeildinni. Liðið varð bikarmeistari fyrr á árinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.