23.07.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Bjarki og Þórir fá nýjan liðsfélaga frá Sevilla (Staðfest)

Mynd: Venezia FC

Mynd: Venezia FC
Ítalska félagið Venezia hefur staðfest kaupin á framherjanum Akor Adams frá Sevilla.
Adams er 26 ára og hóf atvinnumannaferilinn í Noregi með Sogndal og Lillestrom áður en hann gekk til liðs við Montpellier árið 2023.
Hann stóð sig vel í Frakklandi og frammistaðan skilaði honum félagaskiptum til Sevilla á síðasta ári. Nú, einu og hálfu tímabili síðar, hefur hann yfirgefið spænska félagið og samið til langs tíma við Venezia.
Adams skoraði tíu mörk í 37 leikjum fyrir Sevilla. Hann var einnig í nígerska landsliðshópnum sem vann til bronsverðlauna á Afríkumótinu í janúar.
Hjá Venezia hittir hann fyrir Íslendingana Bjarka Stein Bjarkason og Þóri Jóhann Helgason. Bjarki hefur leikið með félaginu undanfarin ár en Þórir kom frá Lecce í sumar.
Venezia vann ítölsku B-deildina í vor og leikur því á ný í Seríu A á komandi tímabili.

Akor Adams joins Venezia FC.https://t.co/IkJcicfRwG#ArancioNeroVerde ????????? pic.twitter.com/cxFfWA3HVF
— Venezia FC (@VeneziaFC_EN) July 22, 2026