Fotbolti.net
23.07.26 - 20:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Keflavík kaupir Alpha Conteh frá Stjörnunni (Staðfest)

Keflavík kaupir Alpha Conteh frá Stjörnunni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alpha Conteh er alfarið genginn til liðs við Keflavík frá Stjörnunni. Hann skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2029.
Þessi 26 ára kantmaður frá Síerra Leóne gekk til liðs við félagið á láni frá Stjörnunni fyrr í sumar og hefur verið í lykilhlutverki hjá nýliðunum í Bestu deildinni

Hann hefur komið við sögu í níu leikjum í Bestu deildinni í sumar og skorað tvö mörk.

„Alpha hefur komið afar sterkur inn í lið Keflavíkur síðan hann kom til félagsins á láni fyrr í sumar og hefur fljótt fest sig í sessi sem mikilvægur hlekkur í liðinu. Það er því mikið fagnaðarefni að félagið hafi nú tryggt sér þjónustu hans til lengri tíma. Við bjóðum Alpha því formlega velkominn í Keflavík og hlökkum til að fylgjast með honum á komandi árum," segir í tilkynningu frá Keflavík.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.