Fotbolti.net
23.07.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þurfa ekki að borga Red Bull fyrir Klopp

Jurgen Klopp.

Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: EPA

Eins og fjallað var um fyrr í dag mun þýska fótboltasambandið kynna Jurgen Klopp sem nýjan landsliðsþjálfara á morgun. Búið er að boða til blaðamannafundar.

Hann tekur við liðinu af Julian Nagelsmann sem sagði af sér eftir vonbrigðin á HM.
Eftir að Klopp hætti sem stjóri Liverpool hefur hann verið að vinna sem yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull en orkudrykkjarframleiðandinn rekur nokkur fótboltafélög víða um heim.

Klopp er með samning við Red Bull til 2029 en þýska sambandið þarf ekki að greiða neitt til að losa þjálfarann undan þeim samningi. Þess í stað hefur verið komist að samkomulagi um að þýska sambandið greiði 1 milljón evra í Wings for Life sem eru góðgerðarsamtök á vegum Red Bull.

Hundrað prósent af öllum framlögum renna beint til læknisfræðilegra rannsókna á mænuskaða. Klopp er einnig mikill stuðningsmaður alþjóðlega góðgerðarhlaupsins Wings for Life World Run og hefur sjálfur tekið þátt í hlaupinu síðustu tvö árin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.