Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 23. ágúst 2019 22:33
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Villa og Everton: Gylfi hörmulegur
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Samkvæmt einkunnagjöf Sky Sports var Gylfi Þór Sigurðsson meðal verstu manna vallarins er Everton tapaði 2-0 fyrir Aston Villa fyrr í kvöld.

Gylfi var tekinn útaf eftir 62 mínútur og kom Alex Iwobi inn í hans stað. Iwobi hleypti miklu lífi í sóknarleik Everton og komst nálægt því að skora, en skot hans fór í innanverða stöngina og út.

Wesley Moraes, sóknarmaður Villa, var maður leiksins og fékk Jota einnig 8 í einkunn. Enginn leikmaður heimamanna fékk undir 7 fyrir sinn þátt nema Ahmed Elmohamady sem kom inn af bekknum.

Í liði Everton voru það aðeins Michael Keane og Lucas Digne sem fengu yfir 5 í einkunn í byrjunarliðinu. Iwobi og Moise Kean komu inn af bekknum og fengu 7.

Gylfi Þór fékk aðeins 4 fyrir sinn þátt, rétt eins og Richarlison, Andre Gomes og Dominic Calvert-Lewin.

Aston Villa: Heaton (7), Guilbert (7), Mings (7), Engels (7), Taylor (7), McGinn (7), Luiz (7), Grealish (7), Trezeguet (7), Jota (8), Wesley (8).
Varamenn: Elmohamady (6), El Ghazi (7).

Everton: Pickford (5), Coleman (5), Mina (5), Keane (6), Digne (6), Schneiderlin (5), Gomes (4), Richarlison (4), Sigurdsson (4), Bernard (5), Calvert-Lewin (4).
Varamenn: Walcott (5), Iwobi (7), Kean (7).
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner