23.09.26 - 15:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjórir yfirgefa Vestra (Staðfest)

johannes Selven verður ekki áfram hjá Vestra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri hefur tilkynnt að fjórir væru búnir að yfirgefa félagið en tímabilinu í Lengjudeildinni lauk fyrr í þessum mánuði. Þrír leikmenn, allt Svíar, eru farnir frá Vestra og aðstoðarþjálfari liðsins.
Jacob Stensson fór til IK Brage í Svíþjóð í lok síðasta mánaðar og ljóst er að þeir Albin Mörfelt og Johannes Selven verða ekki heldur áfram. Þá er ljóst að aðstoðarþjálfarinn Jonathan Oyal verður ekki annað tímabil hjá Vestra.

Chriss-Albin Mörfelt spilaði fjóra leiki í Evrópukeppni með Vestra og 16 í Lengjudeildinni og skoraði í þeim tvö mörk. Selven lék nítján leiki í Lengjudeildinni og skorað þrjú mörk. Hann kom einnig við sögu í þremur Evrópuleikjum. Hann kom fyrst til Vestra árið 2024 og lék svo átta leiki í Bestu deildinni á síðasta tímabili.
Stensson lék 17 leiki með Vestra í Lengjudeildinni og fór beint í byrjunarlið Brage í sænsku B-deildinni og hefur spilað fyrstu fjóra leikina eftir komu sína. Hann kom í Vestra eftir að hafa áður verið hjá Brage.
Þá hefur Pape Abou Cisse, sem samdi við Vestra síðasta vetur en spilaði ekki leik fyrir félagið, fengið félagaskipti til ISE í Dúbaí. Vestri og Cisse riftu samningnum áður en tímabilið byrjaði.
Vestri endaði í 9. sæti Lengjudeildarinnar í sumar.