Tottenham Hotspur getur tryggt sæti sitt í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar í kvöld er liðið fær Wolfsberger í heimsókn klukkan 17:00 í dag.
Lærisveinar Mourinho unnu fyrri leikinn örugglega, 4-1, er liðin mættust í síðustu viku og því formsatriði fyrir liðið að tryggja sæti sitt í kvöld.
Ástæðan fyrir því að Tottenham spilar þennan leik á miðvikudegi en ekki fimmtudegi er sú að Arsenal á heimaleik við Benfica í Lundunúm á morgun og vildi UEFA því ekki hafa tvo leiki í Lundúnum á sama degi.
Leikur dagsins:
17:00 Tottenham - Wolfsberger AC
Athugasemdir