24.04.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Steinarsson í FRAM. (Staðfest)
Keflvíkingurinn Guðmundur Steinarsson sem hefur verið hjá danska 1. deildarliðinu Brönshöj upp á síðkastið skrifaði í dag undir samning við FRAM. Guðmundur byrjaði vel hjá Brönshöj í vor og hefur skorað nokkur mörk og þar af eitt draumamark af 40 metra færi í markvinkilinn. Hann lék með Keflavík undanfarin tímabil hér heima og hefur skorað 28 mörk í Símadeildinni. Guðmundur er mikill hvalreki á fjörur FRAM-ara en Þorbjörn Atli Sveinsson hefur ekkert getað æft með liðinu upp á síðkastið vegna meiðsla. Óvíst er hvort hann verður með liðinu í sumar vegna meiðslanna sem hafa verið að hrjá hann. Þess má geta að einn mesti markaskorari FRAM frá upphafi heitir Guðmundur Steinsson og því fróðlegt að sjá hvort næstum alnafna hans tekst eins vel upp hjá félaginu.
