Fotbolti.net
24.04.19 - 12:32
Elvar Geir Magnússon

Shearer: Leikmenn Man Utd þurfa að sýna að þeim sé ekki sama

Alan Shearer (til vinstri).

Alan Shearer (til vinstri).

Canon

Mynd: Getty Images

Áhugaleysi er eitt af þeim orðum sem notað var um leikmenn Manchester United í 4-0 tapinu gegn Everton. United mætir grönnum sínum í Manchester City í kvöld.

<i>„Það gæti verið furðulegt andrúmsloft á Old Trafford í kvöld því sumir stuðningsmenn Manchester United vila ekki sjá sitt lið vinna í kvöld og koma Liverpool í bílstjórasætið í baráttunni um enska úrvalsdeildartitilinn,"</i> segir Alan Shearer, sérfræðingur BBC.
„Það er samt ekki möguleiki á að þetta muni hafa áhrif á leikmenn United sem þurfa að sanna sig eftir vandræðalega frammistöðu gegn Everton á sunnudag."

„Góðu fréttirnar fyrir Liverpool er að United mun verða líklegra vegna stöðunnar sem liðið er í. Þá tel ég að þeir geti ekki orðið eins slæmir og þeir voru um síðustu helgi."

„City er að elta enska úrvalsdeildartitilinn. United er eftir því að enda í topp fjórum. Ef Tottenham, Arsenal og Chelsea hefðu verið að standa sig algjörlega væri United úr leik," segir Shearer.

„Leikmenn United verða að sýna viðbrögð og sanna að þeim sé ekki sama. Eins og Ole Gunnar Solskjær sagði þá er þetta fullkominn leikur til að sýna það."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Leeds9+111
11Hull City9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.