Fotbolti.net
24.07.26 - 20:20
Víðir Sigurðsson

Hemmi Gunn átti metið einn frá 1968 til 2026

Hermann Gunnarsson fyrir einn af Evrópuleikjum Vals.

Hermann Gunnarsson fyrir einn af Evrópuleikjum Vals.

Canon

Mynd: Sigmundur Ó. Steinarsson

Hermann Gunnarsson átti einn markamet Vals í Evrópukeppni karla í 58 ár eftir að hafa skorað fimm mörk fyrir Val á árunum 1966 til 1968.

Tryggvi Hrafn Haraldsson jafnaði loksins metið í gærkvöld þegar hann skoraði sigurmark Vals gegn Zrinjski Mostar á Hlíðarenda, 1-0.
Hermann, sem íslenska þjóðin átti eftir að dýrka og dá sem sjónvarpsstjörnuna Hemma Gunn um áraraðir, var í lykilhlutverki í liði Vals um árabil. Hann lék fyrst 16 ára gamall með liðinu árið 1963 og lokaleikina átján árum síðar, 1981. Hermann skoraði 81 mark fyrir Val í efstu deild, auk þess að skora 14 mörk á einu tímabili með ÍBA frá Akureyri þegar hann var þar spilandi þjálfari árið 1970.

Hann er enn í sjöunda sæti yfir markahæstu leikmenn efstu deildar karla frá upphafi með 95 mörk í 155 leikjum og er þriðji markahæsti Valsmaðurinn á eftir Patrick Pedersen og Inga Birni Albertssyni.

Hermann skoraði fimm af átta mörkum Vals í átta fyrstu Evrópuleikjum liðsins á árunum 1966 til 1968. Valsmenn náðu þá eftirtektarverðum úrslitum þegar þeir gerðu jafntefli á Laugardalsvellinum við Standard Liege frá Belgíu, 1-1, árið 1966 og 0-0 gegn stjörnum prýddu liði Benfica árið 1968.

Hermann skoraði gegn Benfica í seinni leiknum í Portúgal og líka gegn ungverska liðinu Vasas og þrjú mörk í tveimur leikjum gegn Jeunesse D’Esch frá Lúxemborg. Valur varð einmitt fyrsta íslenska liðið til að komast í 2. umferð í Evrópukeppni árið 1967 með því að slá út lúxemborgska liðið.

Víðir Sig: Jafnaði 58 ára gamalt félagsmet og Finnar geta ekki skorað
TENGT EFNI

Víðir Sig: Jafnaði 58 ára gamalt félagsmet og Finnar geta ekki skorað


Hermann Gunnarsson, fyrir miðju, gengur af velli eftir leik með íslenska landsliðinu á Laugardalsvellinum.

Hermann Gunnarsson, fyrir miðju, gengur af velli eftir leik með íslenska landsliðinu á Laugardalsvellinum.

Canon

Mynd: Sigmundur Ó. Steinarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.