24.08.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Asprilla í enska boltann á ný.(Staðfest)
Kólumbíski framherjinn Faustino Asprilla tilkynnti í gær að hann væri á leið til enska þriðjudeildar liðssins Darlington. Asprilla sem lék tvo leiki í ensku deildinni með Newcastle á tíunda áratugnum sagðist vera vinu George Reynolds stjórnarformannss Darlington. ,,Ég er vinur stjórnarformannssins og ég vil vinna með liðinu og hjálpa þeim að vinna 2.deildina. Ég hef haldið góðu sambandi við England. Hér á ég góða vini og það væri frábært að geta spilað aftur í úrvalsdeildinni." sagði Asprilla sem er orðinn 32 ára gamall og hefur leikið undanfarið með kólumbíska liðinu Atletico Nacional en áður lék hann með Parma á Ítalíu. Hann lék með landsliði sínu á HM 1994 og 1998.
