Fotbolti.net
24.09.26 - 13:34
Elvar Geir Magnússon

Carroll vaknaði við að karlmaður reyndi að veita sér munnmök

Andy Carroll opnar sig í nýrri ævisögu. Hann var leikmaður Newcastle þegar brotið átti sér stað.

Andy Carroll opnar sig í nýrri ævisögu. Hann var leikmaður Newcastle þegar brotið átti sér stað.

Canon

Mynd: EPA

Sóknarmaðurinn Andy Carroll, fyrrum leikmaður Liverpool og Newcastle, hefur opnað sig um kynferðisbrot sem hann varð fyrir frá karlmanni árið 2021.

Carroll, sem er 37 ára í dag, var leikmaður Newcastle á þessum tíma og atvikið átti sér stað á heimili hans. Gerandinn var dæmdur í þriggja ára fangelsi.
Carroll segir frá þessu í ævisögu sinni sem ber heitið „Owning it“. Eftir að hafa rætt við kærustu sína Lou Teasdale ákvað hann rétt fyrir prentun að bæta þessu við.

Vinur fyrrverandi eiginkonu Carroll, sem er sagður þekktur einstaklingur en er ónafngreindur, gisti á heimili hans eftir að þeir höfðu horft á hnefaleikabardaga. Kærasta hans var fjarverandi en Carroll segir manninn „hafa boðið sjálfum sér heim til hans“.

Carroll segir að sér hafi liðið óþægilega í nærveru hans og fundið skringilega tilfinningu eftir að hafa drukkið nokkra drykki. Hann velti því fyrir sér hvort maðurinn hefði byrlað sér. Hann hafi farið að sofa en vaknað við það að maðurinn hafi reynt að veita sér munnmök.

Carroll henti manninum þá út úr húsinu en þegar hann reyndi að komast aftur inn þá kýldi Carroll hann með þeim afleiðingum að hann rotaðist. Caroll hringdi í lögregluna og var í miklu áfalli, hann segist hafa grátið í örmum barnapíu barna sinna.

Árásarmaðurinn var fundinn sekur um kynferðisbrot, dæmdur í fangelsi, settur á skrá yfir kynferðisbrotamenn og dæmdur í nálgunarbann. Carroll bar vitni fyrir dómi, ferli sem hann segir hafa verið „niðurlægjandi, vandræðalegt og algjörlega hræðilegt“.

„Ég varð fyrir kynferðisofbeldi, þar sagði ég það. Það er hræðilegt að hugsa um það og aðeins fáir vissu af því. Ég og Lou eyddum miklum tíma í að ræða hvort við ættum að minnast á það í þessari bók eða ekki," segir Carroll. „Þetta atvik hefur mótað mig, alveg eins og góðu hlutirnir í lífinu. Ég hugsaði um þetta á hverjum degi, sem gerði það erfitt að einbeita mér að öðrum hlutum, þar á meðal fótbolta. Áfallið sem fylgdi því sem gerðist er ekki horfið."

Carroll gekk til liðs við utandeildarliðið Dagenham & Redbridge í fyrrasumar en auk þess að spila með því er hann meðeigandi í félaginu.
Carroll gekk til liðs við utandeildarliðið Dagenham & Redbridge í fyrrasumar.

Carroll gekk til liðs við utandeildarliðið Dagenham & Redbridge í fyrrasumar.

Canon

Mynd: Dagenham & Redbridge

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.