24.09.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
David Alaba til Udinese (Staðfest)

Mynd: Udinese

Mynd: Udinese
David Alaba er genginn í raðir Udinese og hefur verið kynntur sem nýr leikmaður ítalska félagsins.
Alaba var án félags eftir að samningur hans við Real Madrid rann út í sumar.
Alaba er 34 ára fjölhæfur Austurríkismaður sem á að baki 117 A-landsleiki. Hann spilaði mest sem vinstri bakvörður hjá Bayern München á sínum tíma, sem miðvörður hjá Real Madrid en spilaði svo framar með landsliðinu.

Hann vann þýsku deildina 10 sinnum með Bayern, bikarinn sex sinnum og Meistaradeildina tvisvar. Hjá Real vann hann deildina tvisvar, bikarinn einu sinni og Meistaradeildina tvisvar.
Hann hefur tíu sinnum verið kjörinn fótboltamaður ársins í Austurríki.
Udinese er í 13. sæti ítölsku Serie A eftir fimm umferðir.