Fotbolti.net
24.09.26 - 12:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ívar Örn tekur slaginn áfram með HK (Staðfest)

Ívar Örn tekur slaginn áfram með HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Ívar Örn Jónsson hefur framlengt samning sinn við uppeldisfélagið HK og er hann nú samningsbundinn út næsta tímabil. Ívar er fæddur 1994 og hefur einnig spilað með Víkingi og Val á sínum meistaraflokksferli. Hann hefur verið hjá HK síðan 2020 eftir að hafa farið eftir tímabilið 2012.

Ívar hefur verið máttarstólpi í HK-liðinu undanfarin ár og var valinn Knattspyrnumaður HK á lokahófi félagsins sem haldið var á laugardag.

Ívar hefur leikið yfir 200 leiki fyrir uppeldisfélagið og segir í tilkynningu félagsins að hann sé félagsmaður fram í fingurgóma.
„Ívar Örn er öflugur leikmaður og frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn í HK. Hann er fagmaður mikill og það er mikil ánægja með að hann ætli að taka slaginn áfram með uppeldisfélaginu," segir Sigurjón Hallgrímsson sem er formaður HK.

HK endaði í 4. sæti Lengjudeildarinnar í sumar og féll út í undanúrslitum umspilsins.
Ívar Örn tekur slaginn áfram með HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.