Fotbolti.net
24.09.26 - 15:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Man Utd fær efnilegan miðjumann frá grönnunum (Staðfest)

Man Utd fær efnilegan miðjumann frá grönnunum (Staðfest)
Canon

Mynd: Man Utd

Manchester United hefur fengið Karim Cassim frá grönnunum í Manchester City. United greiðir City uppeldisbætur fyrir leikmanninn.

Hann er 17 ára miðjumaður, enskur unglingalandsliðsmaður, sem var hluti af liði City sem vann enska bikarinn í flokki unglingaliða á síðasta tímabili.

Hann er leikmaður sem spilar á miðri miðjunni og á Old Trafford er litið á hann sem leikmann sem gæti komist í aðallið félagsins í framtíðinni.
Enska úrvalsdeildin þurfti að gefa grænt ljóst á félagaskiptin og það er komið og nú má Cassim spila fyrir unglingalið félagsins.

Búist er við því að hann spili undir stjórn Darren Fletcher með U18 liði United. United er líka að vinna í því að klára kaup á David Eze frá City og Isaac Konde frá Liverpool en báðir eru þeir 16 ára.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.